

Það sem ekki varð
Það er merkilegt við stjórnmálin að stjórnmálamenn eru oftast dæmdir af því sem þeir gera, en sjaldnast af því sem aldrei varð á þeirra vakt.
Ráðherrar klippa á borða, vígja mannvirki, kynna áætlanir og telja upp afrek sín. En hver ber ábyrgð á verksmiðjunni sem aldrei reis? Fyrirtækinu sem aldrei var stofnað? Fjárfestingunni sem fór annað? Störfunum sem aldrei urðu til? Ungmennunum sem komust ekki í það nám sem hugur þeirra stóð til og atvinnulífið kallaði eftir?
Þessi saga er sjaldan sögð. Það er enda erfitt að mæla verðmæti sem aldrei urðu til. Þau birtast ekki í hagtölum, skila engum skatttekjum og eru ekki færð til bókar í ríkisreikningi.
Það er þó ekki þar með sagt að þjóðin hafi ekki orðið af þeim.
Milljarðarnir sem aldrei urðu til
Íslendingar búa að miklum náttúruauðlindum og hafa lengi státað af því að framleiða raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum og valkostir til frekari örkuframleiðslu eru margir. Þrátt fyrir það er skortur á raforku, eða möguleikum til að flytja hana milli landshluta, orðinn ein helsta hindrun atvinnuuppbyggingar hér á landi.
Landsnet hefur metið að takmarkanir í flutningskerfi raforku hafi kostað þjóðarbúið 11–15 milljarða króna á ári. Það er sláandi tala. En athyglisverðara er að í þeirri tölu eru glötuð tækifæri til atvinnuuppbyggingar ekki talin með.
Hvað skyldi sú tala vera há?
Hversu mörg fyrirtæki hafa hætt við uppbyggingu vegna þess að ekki var hægt að tryggja þeim raforku? Hversu margar fjárfestingar hafa farið annað? Hversu mörg störf hafa aldrei orðið til í byggðarlögum sem sárlega þurfa á þeim að halda?
Eitt er að geta ekki virkjað nægilega mikið. Annað að geta ekki flutt þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Hvort tveggja er afleiðing ákvarðana sem hafa verið teknar eða látið hjá líða að taka.
Orkuskiptin sem ekki urðu
Sem dæmi má nefna að Í Vestmannaeyjum hefur Vinnslustöðin um árabil fjárfest í búnaði til að rafvæða fiskimjölsverksmiðju sína. Markmiðið var að draga úr olíunotkun og nýta íslenska raforku í stað innfluttrar olíu.
Nú er staðan sú að raforkan er orðin svo dýr, ekki síst vegna flutningskostnaðar, að hagkvæmara er að brenna olíu. Samkvæmt mati fyrirtækisins gæti kostað allt að hálfum milljarði króna meira á ári að nota rafmagn í stað olíu.
Þetta er auðvitað með ólíkindum.
Stjórnvöld boða orkuskipti, leggja álögur á jarðefnaeldsneyti og setja metnaðarfull, á köflum óraunhæf, loftslagsmarkmið. Á sama tíma skapa þau rekstrarumhverfi þar sem fyrirtæki sem hefur fjárfest í orkuskiptum sér fram á að hagkvæmara sé að brenna olíu.
Það er nefnilega hægt að eyðileggja ávinning skynsamlegra fjárfestinga án þess að banna þær nokkurn tíma. Það nægir að skapa rekstrarumhverfi þar sem þær borga sig ekki.
Gullhúðuðu hindranirnar
Önnur birtingarmynd þess sem ekki varð er sívaxandi regluverk sem virðist á stundum hafa öðlast sjálfstætt líf, óháð þeim tilgangi sem því var upphaflega ætlað að þjóna.
Við innleiðingu EES-reglna hefur íslenskum stjórnvöldum ítrekað þótt ástæða til að ganga lengra en sameiginlegar reglur krefjast. Fyrirbærið hefur fengið hið „skemmtilega“ heiti gullhúðun, þótt það sem undir liggur sé sjaldnast gulls ígildi fyrir þá sem þurfa að standa undir kostnaðinum.
Árið 2024 skilaði starfshópur stjórnvalda skýrslu um gullhúðun. Í rannsókn sem kynnt var í tengslum við þá vinnu kom fram að í um 40% frumvarpa til innleiðingar EES-tilskipana á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á árunum 2010–2022 hafði íslenskum reglum verið bætt ofan á þær evrópsku.
Hvað gerist þegar íslensk fyrirtæki þurfa að uppfylla kröfur sem keppinautar þeirra annars staðar á EES þurfa ekki að uppfylla?
Kostnaðurinn eykst. Samkeppnishæfnin minnkar. Fjármunir og tími fara í að uppfylla kröfur í stað þess að skapa verðmæti. Sum verkefni verða dýrari, öðrum er frestað og enn önnur verða aldrei að veruleika.
Og þá er ósvarað hversu margir hafa einfaldlega hætt við áður en fyrsta umsókn var send inn.
Iðnaðarmennirnir sem aldrei urðu
Þriðja dæmið er menntakerfið.
Um áratugaskeið hefur opinber stefnumótun lagt mikla áherslu á bóknám og háskólamenntun, en raun-, tækni- og iðnmenntun ekki fengið þann sess sem þarfir atvinnulífsins kalla á.
Samtök iðnaðarins hafa bent á að árlega sé 600–1.000 umsóknum um iðnnám hafnað vegna þess að skólarnir hafi ekki bolmagn til að taka við öllum sem vilja stunda námið.
Hugsum okkur þá stöðu. Atvinnulífið kallar eftir iðnmenntuðu fólki. Ungt fólk vill afla sér iðnmenntunar. En menntakerfið getur ekki boðið því skólavist.
Á meðan vantar iðnmenntað fólk til starfa.
Til að bæta gráu ofan á svart sýndu niðurstöður PISA 2025 að aðeins 62% íslenskra fimmtán ára nemenda náðu grunnhæfni í stærðfræði. Undirstöður frekara náms í raunvísindum og tæknigreinum eru því veikari en við eigum að sætta okkur við.
Hversu margir verðandi frábærir iðnaðarmenn urðu aldrei iðnaðarmenn? Hversu margir framtíðarfrumkvöðlar fengu ekki það veganesti sem þeir þurftu? Hversu mörg fyrirtæki náðu ekki að vaxa vegna þess að þau fundu ekki starfsfólk með þá þekkingu sem starfsemin krafðist?
Ábyrgðin á athafnaleysinu
Auðvitað verða ekki allar hugmyndir að veruleika. Ekki eru allar framkvæmdir skynsamlegar og ekki allar fjárfestingar arðbærar. Eðlilegar kröfur um öryggi, umhverfisvernd og vandaða stjórnsýslu verða að gilda.
En það hlýtur líka að þurfa að meta kostnaðinn af því að gera ekkert. Kostnaðinn af því að þvælast fyrir.
Við þekkjum afleiðingar rangra ákvarðana stjórnvalda. Þær má oft mæla í krónum og aurum. Miklu erfiðara er að draga stjórnvöld til ábyrgðar fyrir það sem þau komu í veg fyrir að yrði til, með því að taka engar ákvarðanir, taka þær of seint eða skapa röng skilyrði.
Það er auðvelt fyrir ráðherra að standa við ræðupúlt og kynna milljarða til þessa eða hins málaflokksins. En hver kynnir þjóðinni yfirlit yfir þá milljarða sem fóru forgörðum vegna athafnaleysis stjórnvalda?
Við höfum um árabil varið ómældum tíma í að deila um hvernig skipta eigi verðmætunum sem þjóðin skapar. Miklu minni tíma höfum við varið í að spyrja hvers vegna verðmætin urðu ekki meiri.
Það er auðvelt fyrir stjórnmálamenn að lofa að skipta kökunni með sanngjörnum hætti. Mun erfiðara virðist þeim reynast að skapa skilyrði fyrir því að hún verði yfirleitt stærri.
Það sem ekki varð skilar engum skatttekjum, greiðir engin laun og stendur ekki undir neinni opinberri þjónustu. Og einmitt þess vegna þarf enginn ráðherra að gera grein fyrir því í ríkisreikningi.
Þess vegna þurfum við að fara að ræða það sem ekki varð.
Því mesti skaðinn af vondum stjórnmálum er ekki endilega það sem þau hafa gert þjóðinni.
Hann getur ekki síður verið allt það sem þau hafa komið í veg fyrir að fólk og fyrirtæki gætu gert sjálf.
Höfundur er alþingismaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 31. október 2026



