

Ætti landsbyggðin að lýsa yfir sjálfstæði frá Reykjavík?
Undanfarið hef ég velt því fyrir mér hvort landsbyggðin ætti hreinlega að lýsa yfir sjálfstæði frá Reykjavík.
Áður en einhver opnar vegabréfaeftirlit við Hvalfjarðargöng og á Hellisheiði skal tekið fram að ég hef hvorki haft samband við Sameinuðu þjóðirnar né látið hanna sérstakan fána landsbyggðarinnar.
En veltum þessu fyrir okkur í smástund. Hvernig liti efnahagur þessara tveggja ríkja út? Hver fengi útflutningstekjurnar, auðlindirnar og framleiðsluna? Og hvor aðilinn væri í raun háðari hinum?
Landsbyggðin kæmi nefnilega ekki tómhent að samningaborðinu, heldur þvert á móti.
Ekki slæmt bú fyrir nýstofnað ríki
Árið 2025 námu útflutningstekjur af sjávarafurðum um 359 milljörðum króna og útflutningur á áli og álafurðum um 318 milljörðum. Samanlagt voru þessar tvær atvinnugreinar ábyrgar fyrir rúmlega 73% af öllum vöruútflutningi Íslands.
Stór hluti þessara verðmæta byggist á auðlindum, framleiðslu og atvinnustarfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.
Þá er landbúnaðurinn ótalinn, með um 100 milljarða króna í áætlað framleiðsluvirði árið 2025.
Svo er það ferðaþjónustan. Útgjöld erlendra ferðamanna á Íslandi námu rúmlega 540 milljörðum króna á síðasta ári. Vissulega njóta fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu góðs af þeim tekjum, en stór hluti aðdráttarafls Íslands felst í náttúrunni sem ferðamenn koma til að upplifa um allt land.
Og það gæti jafnvel komið einhverjum á óvart að Keflavíkurflugvöllur er ekki heldur á höfuðborgarsvæðinu. Í nýja borgarríkinu væri gott að stöðva þrengingar að Reykjavíkurflugvelli…
Þetta er auðvitað sett fram í hálfkæringi. Ekki er hægt að skipta þjóðarbúskapnum með reglustiku á landakorti. Útflutningsverðmæti eru ekki það sama og skatttekjur eða landsframleiðsla og ekki verður öll þessi framleiðsla til utan höfuðborgarsvæðisins. Fjármálaþjónusta, stjórnsýsla, viðskipti og fjölmargar atvinnugreinar höfuðborgarsvæðisins eru órjúfanlegur hluti af þessari verðmætasköpun.
En það er einmitt mergur málsins. Landsbyggðin er ekki kostnaðarliður í bókhaldi þjóðarinnar. Hún er ein af undirstöðum þess.
Hvers vegna virðist þá svo oft sem ákvarðanir stjórnvalda séu teknar án nægilegs tillits til þeirra sem þar búa, starfa og skapa þessi verðmæti?
Reikningurinn sendur út á land
Miðstýring þjónustu getur sparað ríkinu fé og í sumum tilfellum bætt gæði þjónustunnar. En þegar þjónustan færist fjær fólkinu hverfur kostnaðurinn ekki endilega. Hann getur einfaldlega færst af reikningi ríkisins yfir á reikning heimilanna.
Tökum Loftbrúna sem dæmi. Henni var komið á til að jafna aðgengi landsbyggðarfólks að þjónustu sem að stórum hluta er staðsett á höfuðborgarsvæðinu.
Nú hefur ríkisstjórnin boðað að breyta 40% niðurgreiðslu flugfargjalda í fasta krónutölu. Eftir mótmæli hefur ráðherra boðað 9.000 krónur á fluglegg í stað þeirra 7.000 sem upphaflega stóð til að greiða. Það er vissulega skref í rétta átt, en með breytingunni færist áhættan af hækkandi flugfargjöldum í auknum mæli yfir á farþegann.
Síðan kemur kílómetragjaldið.
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 er lögð til 15,9% hækkun þess, meðal annars til að afla ríkissjóði fjögurra milljarða króna umfram almenna verðlagsuppfærslu.
Það er eðlilegt að þeir sem nýta vegakerfið taki þátt í fjármögnun þess. En fyrir íbúa dreifbýlis eru langar vegalengdir oft ekki val, heldur nauðsyn til að komast til vinnu, í skóla eða sækja heilbrigðisþjónustu.
Þarna liggur vandinn. Við miðstýrum þjónustu, en horfum ekki alltaf nægilega til kostnaðarins sem fylgir því að sækja hana. Ferðatíminn, flugmiðarnir, eldsneytið og vinnutíminn sem tapast hverfa ekki þótt þeir birtist ekki í reikningum ríkisins.
Það sem sparast í ríkisbókhaldinu getur hæglega orðið að útgjöldum í heimilisbókhaldinu. Og það sem er hagkvæmt fyrir ríkissjóð er ekki endilega hagkvæmt fyrir þjóðfélagið.
Þegar leikreglum er breytt í miðjum leik
En það eru ekki aðeins heimilin sem þurfa að búa við afleiðingar ákvarðana stjórnvalda. Rekstrarumhverfi fyrirtækjanna skiptir ekki síður máli.
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 er lagt til að virðisaukaskattur á aðgang að baðlónum hækki úr 11% í 24%. Ríkissjóður áætlar að breytingin skili fjórum milljörðum króna í auknar tekjur á næsta ári.
Fjórir milljarðar í ríkissjóð. Málið afgreitt?
Ekki alveg.
Það má færa málefnaleg rök fyrir samræmingu skattþrepa. Hluti ferðaþjónustunnar nýtur lægra virðisaukaskattsþreps en önnur starfsemi. En það er annað mál hvort breytingar sem þessar séu innleiddar með nægilegum fyrirvara og tilliti til þeirra fjárfestinga sem þegar hefur verið ráðist í.
Uppbygging baðlóna krefst mikils fjármagns og fjárfestingarákvarðanir eru teknar með margra ára, jafnvel áratuga, sjónarhorn í huga. Rekstraraðilar leggja mat á framtíðartekjur, kostnað og áhættu áður en ráðist er í framkvæmdir. Þegar skattalegum forsendum er breytt með skömmum aðlögunartíma getur það haft veruleg áhrif á arðsemi fjárfestinganna.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa meðal annars bent á að baðlón hafi þegar selt aðgangsmiða og árskort fyrir árið 2027 á verði sem ekki verður breytt eftir á. Fyrirtækin geta því þurft að bera skattahækkunina sjálf vegna þessara viðskipta. Samtökin hafa jafnframt varað við áhrifum á fyrirhugaða uppbyggingu.
Áformin komu vissulega fram fyrr á árinu, en nokkurra mánaða fyrirvari er ekki langur tími þegar fjárfestingarákvarðanir eru teknar til áratuga.
Og þetta er ekki einsdæmi.
Á síðasta ári samþykkti Alþingi umfangsmiklar breytingar á veiðigjöldum. Samkvæmt upphaflegu frumvarpi áttu þær að auka veiðigjald um rúmlega átta milljarða króna árið 2026, áður en ákveðið var að innleiða hluta breytinganna í áföngum.Við meðferð frumvarpsins vöruðu sveitarfélög við mögulegum áhrifum á fjárfestingar, störf og útsvarstekjur. Akureyrarbær benti sérstaklega á að afleiðingarnar gætu náð langt út fyrir sjávarútveginn sjálfan, til fyrirtækja sem þjónusta atvinnugreinina um allt land.
Þegar stórt sjávarútvegsfyrirtæki frestar fjárfestingu eru áhrifin nefnilega ekki bundin við ársreikning þess. Framkvæmdir við fiskvinnsluhús geta beðið, verkefni til verktaka og iðnaðarmanna minnkað og þjónustufyrirtæki misst viðskipti.
Málarinn sem átti að mála húsið fær kannski aldrei símtalið.
Þarna birtast afleidd áhrif sem geta náð langt út fyrir fyrirtækið sjálft. Minni fjárfestingar geta þýtt minni atvinnu, minni tekjur heimila og að lokum minni skatttekjur hins opinbera.
Vissulega geta auknar skatttekjur ríkisins einnig skapað verðmæti, til dæmis með fjárfestingum í innviðum og opinberri þjónustu. En það undirstrikar einmitt hvers vegna nauðsynlegt er að meta heildaráhrifin, ekki aðeins tekjuaukann hjá ríkissjóði.
Það er því athyglisvert að Alþingi skyldi ákveða að Byggðastofnun meti áhrif veiðigjaldanna á sjávarútvegssveitarfélög og skili niðurstöðum fyrir árslok 2027. Áhrifagreiningar voru vissulega gerðar við undirbúning laganna, en eftir stendur spurningin hvort byggðaleg og afleidd áhrif þeirra hafi verið nægilega ljós áður en ákvörðunin var tekin.
Þessi dæmi sýna hvers vegna fyrirsjáanleiki og heildstætt áhrifamat skipta svo miklu máli. Fyrirtæki sem stendur frammi fyrir aukinni óvissu getur þurft að gera meiri kröfur til ávöxtunar áður en það ræðst í nýjar fjárfestingar. Verkefni sem áður var talið arðbært getur orðið óhagkvæmt.
Fjárfestingar sem taka áratugi að greiða sig upp krefjast fyrirsjáanleika. Þegar leikreglum er breytt með skömmum fyrirvara getur það dregið úr fjárfestingum og framtíðarverðmætasköpun.
Það er tiltölulega einfalt að áætla hversu marga milljarða skattabreyting á að skila ríkissjóði á næsta ári. Mun erfiðara er að meta verðmæti fjárfestinganna sem kunna aldrei að verða að veruleika, verkefnanna sem verða ekki unnin og skattteknanna sem þar með tapast.
Það að áhrifin séu erfiðari í útreikningi þýðir ekki að þau séu síður raunveruleg.
Hvað kostar að veikja undirstöðurnar?
En afleiðingarnar geta orðið mun víðtækari en minni fjárfestingar og tapaðar skatttekjur.
Þegar atvinnulíf veikist og þjónusta færist í auknum mæli úr dreifbýli versna forsendur fólks til að búa þar. Fólki fækkar, rekstrargrundvöllur þjónustu versnar og enn meiri miðstýring virðist verða hagkvæmasti kosturinn. Þannig getur myndast vítahringur sem erfitt er að stöðva.
Miðstýring getur vissulega skilað hagræðingu, en sú hagræðing verður að skoðast í samhengi við kostnaðinn sem hún getur lagt á samfélagið til lengri tíma.
Hvað kostar það þjóðarbúið þegar sveitarfélag missir mikilvægan atvinnurekanda? Þegar sérhæfð þekking hverfur, þjónustufyrirtæki hætta starfsemi og fjárfestingar flytjast annað? Og hvað kostar að byggja þessa starfsemi upp aftur, ef þess gerist þörf?
Þetta snýst nefnilega ekki aðeins um byggðastefnu, heldur einnig efnahagslegt öryggi þjóðarinnar.
Tökum fæðuöryggi sem dæmi.
Í lokaritgerð minni í viðskiptafræði fjallaði ég um fæðuöryggi Íslands og möguleika á að koma upp sex mánaða neyðarbirgðum korns til fóðurframleiðslu.
Ástæðan er einföld. Við búum á eyju í miðju Atlantshafi og innlend matvælaframleiðsla byggist að verulegu leyti á innfluttum aðföngum. Ef aðfangakeðjur rofna getur framleiðslan raskast, jafnvel þótt bændurnir, búfénaðurinn og landið séu enn til staðar.
Það er eðlilegt að vilja aukna samkeppni og lægra matvælaverð. Innflutningur er líka mikilvægur hluti af fæðuöryggi okkar. En þegar ákvarðanir eru teknar um innflutning, tollvernd og rekstrarskilyrði landbúnaðar verður jafnframt að meta áhrifin á innlenda framleiðslugetu og viðnámsþrótt þjóðarinnar.
Fæðuöryggi er ekki tryggt með tollvernd einni saman. Það krefst meðal annars fjölbreyttra aðfangaleiða, skynsamlegs birgðahalds og þess að við varðveitum nauðsynlega innlenda framleiðslugetu.
Ef við rifjum upp sjálfstæðishugmyndina væri forvitnilegt að sjá hvernig nýja borgarríkið Reykjavík hygðist tryggja sér matvæli. Innflutningur væri auðvitað valkostur, en ég hef grun um að landsbyggðin yrði fljótt ofarlega á listanum yfir mikilvægustu viðskiptalöndin.
Þegar á reynir er nefnilega ekki hægt að endurreisa framleiðslugetu, sérhæfða þekkingu og nauðsynlega innviði á einni nóttu.
Sama hugsun á við um atvinnulífið og byggðirnar almennt. Fjölbreytt verðmætasköpun og öflugir innviðir um allt land geta gert íslenskt hagkerfi betur í stakk búið til að takast á við áföll.
Sterk landsbyggð er því ekki aðeins hagsmunamál þeirra sem þar búa. Hún er hluti af efnahagslegu öryggi allra Íslendinga.
Sjálfstæði? Nei, jafnræði.
Við skulum því leggja sjálfstæðishugmyndina til hliðar, að minnsta kosti í bili.
Það væri hvorki skynsamlegt né hagkvæmt að skipta Íslandi upp í tvö ríki. Höfuðborgarsvæðið og landsbyggðin þurfa hvort á öðru að halda. Við erum eitt samfélag og hagsmunir okkar eru samofnir.
En það er kominn tími til að stjórnvöld fari að horfa á heildarmyndina.
Það er ekki nóg að reikna hversu mikið ríkið sparar með því að miðstýra þjónustu, ef ekki er jafnframt metið hversu mikið sú ákvörðun kostar heimilin og atvinnulífið.
Það er ekki nóg að áætla skatttekjur næsta árs án þess að skoða áhrif á fjárfestingar og framtíðarverðmætasköpun.
Og það er ekki nóg að tala um mikilvægi landsbyggðarinnar á hátíðisdögum ef ákvarðanirnar sem teknar eru þess á milli ganga í þveröfuga átt.
Við þurfum ekki að vera sammála um allar skattbreytingar eða hvar einstakar stofnanir eigi að vera staðsettar. En við eigum að geta verið sammála um að ákvarðanir sem snerta heilu byggðarlögin byggist á vönduðu áhrifamati, raunhæfum aðlögunartíma og skilningi á því hvernig verðmæti verða til.
Landsbyggðin þarf ekki sjálfstæði frá Reykjavík.
Hún þarf bara ríkisstjórn sem áttar sig á því að Ísland nær lengra en að borgarmörkunum.
Karl Liljendal Hólmgeirsson, varaþingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.
Greinin birtist fyrst á visir.is 10. nóvember 2026



