Var reynt að fjarstýra Landsvirkjun?

Það sem nú hefur komið fram um starfslok Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar, samskipti stjórnar fyrirtækisins við fjármálaráðuneytið og svör Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra til Alþingis vekur alvarlegar spurningar um stjórnarhætti og ábyrgð.

Landsvirkjun er eitt verðmætasta fyrirtæki íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið hefur verið byggt upp með nýtingu sameiginlegra auðlinda og gegnir lykilhlutverki í efnahagslífi og orkuöryggi landsins. Þess vegna verður að gera ríkar kröfur til þeirra sem fara með stjórn fyrirtækisins og þeirra stjórnmálamanna sem fara með eigendavaldið fyrir hönd þjóðarinnar. Kröfur um að í hvívetna sé vandað til verka með langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi en ekki stundarhagsmuni sitjandi ríkisstjórnar þótt freistnivandinn kunni að vera til staðar.

Var Alþingi sögð öll sagan?

Þann 19. október síðastliðinn svaraði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fyrirspurnum á Alþingi um starfslok Harðar Arnarsonar. Þar lýsti hann málinu sem almennum ágreiningi um stjórnunaráherslur og sagði að engu væri við þá lýsingu að bæta.

Síðan hafa komið fram gögn sem sýna að ráðherra hafði áður fengið upplýsingar um alvarlegan ágreining milli stjórnar Landsvirkjunar og forstjórans.

Í trúnaðarsamskiptum sem bárust ráðherra 11. september var gerð grein fyrir verulegum trúnaðarbresti og athugasemdum Harðar við stjórnarhætti og samskipti stjórnarinnar við ráðuneytið. Um tveimur vikum síðar sagði Hörður upp störfum.

Þetta vekur spurningu sem ráðherra þarf að svara með skýrum hætti: Hvers vegna taldi hann rétt að lýsa málinu fyrir Alþingi sem almennum áherslumun og segja að þar væri öll sagan sögð þegar honum hafði áður verið gerð grein fyrir svo alvarlegum ágreiningi? Ráðherra fékk tækifæri til að svara spurningum þingmanna sl. miðvikudag en fór þess í stað í kringum þær líkt og köttur í kringum heitan graut.

Alþingi á rétt á að fá fullnægjandi upplýsingar um slíkan mun. Ráðherra verður að geta skýrt ekki aðeins hvað hann sagði heldur einnig hvað hann vissi þegar hann sagði það.

Stjórnarfundir án forstjóra – hvað segja lögin?

Annað alvarlegt álitamál varðar fundi stjórnar Landsvirkjunar án þátttöku forstjórans. Hörður hefur gert athugasemdir við fjóra stjórnarfundi á árunum 2025 og 2026 og talið að honum hafi með ólögmætum hætti verið meinað að taka þátt í þeim.

Þann 26. október sagði fjármálaráðherra að engir formlegir stjórnarfundir hefðu verið haldnir án Harðar. Síðar staðfesti stjórn Landsvirkjunar hins vegar að hún hefði tvisvar fundað án forstjórans vegna athugasemda hans við störf hennar. Í tveimur öðrum tilvikum hefði hann vikið af fundi þegar málefni hans sjálfs voru rædd.

Ráðherra hefur síðan skýrt fyrri ummæli sín með því að engir fundir hafi verið boðaðir án forstjórans en hann hafi vikið af þeim þegar hans eigin málefni voru til umræðu.

Hér þarf að liggja skýrt fyrir hvort forstjóri hafi verið boðaður til fundanna, hvort hann hafi verið beðinn um að víkja, hvaða málefni voru rædd í fjarveru hans og hvort sú málsmeðferð hafi samrýmst lögum um Landsvirkjun en þar segir m.a. 6. gr. laga nr. 42/1983: „Forstjóri skal eiga sæti á stjórnarfundum.“

Því er eðlilegt að kalla eftir fundarboðum, fundargerðum og þeim gögnum sem sýna hvernig ákvarðanir um fundarsetu forstjórans voru teknar.

Fundurinn í janúar og ósamræmi í frásögnum

Sérstakar spurningar vakna einnig vegna fundar fjármálaráðherra með stjórn Landsvirkjunar 6. janúar síðastliðinn.

Hörður hefur lýst því að upphaflega hafi verið fyrirhugaður fundur með ráðherra, stjórnarformanni, varaformanni og honum sjálfum. Að hans sögn hafi fyrirkomulaginu síðan verið breytt að ósk ráðherra þannig að öll stjórnin mætti en hann ekki.

Daði Már hefur hafnað þessari frásögn og sagt að um tvo aðskilda fundi hafi verið að ræða, annars vegar fund með stjórn fyrirtækisins og hins vegar fyrirhugaðan fund með stjórn og forstjóra sem ekki hafi orðið af vegna dagskrár.

Fyrir liggur að ráðherra fundaði með stjórn Landsvirkjunar 6. janúar án Harðar. Samkvæmt upplýsingum úr gögnum ráðuneytisins var þar meðal annars rætt um ágreining Landsvirkjunar og Landsnets.

Hvers vegna var þetta viðkvæma rekstrartengda mál rætt á fundi ráðherra og stjórnar án þátttöku forstjórans?

Þegar eigendaeftirlit verður álitamál

Stjórn Landsvirkjunar hefur upplýst að frá því hún tók við í apríl 2025 hafi verið haldnir níu fundir með fjármálaráðuneytinu.

Samkvæmt skýringum stjórnar hafi þar meðal annars verið rætt um arðsemi, arðgreiðslur, fjármagnsskipan og stjórnarstörf.

Það er eðlilegt að ríkið, sem eigandi Landsvirkjunar, fylgist með fjárhagslegri stöðu og stefnumótun fyrirtækisins. En hlutverk ráðherra sem handhafa eina hlutabréfsins í Landsvirkjun er ekki ótakmarkað og verður að fara saman við þá ábyrgðarskiptingu sem lög mæla fyrir um.

Í 5. gr. laga um Landsvirkjun segir að stjórnarmenn skuli eingöngu hafa hagsmuni
fyrirtækisins að leiðarljósi. Í 6. gr. er kveðið á um að stjórn fari með málefni fyrirtækisins en forstjóri annist daglegan rekstur samkvæmt stefnu og fyrirmælum stjórnar.

Þessi verkaskipting er grundvallaratriði.

Hörður hefur gert athugasemdir við það sem hann telur óeðlilega íhlutun stjórnarmanna í daglegan rekstur og aukin samskipti stjórnar við ráðuneytið án aðkomu hans. Hann hefur jafnframt lýst áhyggjum af lagalegri áhættu og meðferð viðkvæmra upplýsinga.

Landsvirkjun starfar á samkeppnismarkaði þar sem trúnaðarupplýsingar, viðskiptahagsmunir og skýr ábyrgð skipta miklu máli. Óljós mörk milli eiganda, stjórnar og framkvæmdastjórnar geta því skapað raunverulega áhættu, jafnvel þótt ekki hafi enn verið sýnt fram á tiltekið lögbrot.

Ábyrgðin verður ekki færð frá ráðherra

Fjármálaráðherra getur með réttu bent á að stjórn Landsvirkjunar beri ábyrgð á ráðningu og starfslokum forstjóra. En hann getur ekki með þeirri skýringu firrt sig ábyrgð á eigin samskiptum við stjórnina eða þeim upplýsingum sem hann veitir Alþingi.

Ráðherra ber ábyrgð á stjórn fyrirtækisins enda skipar hann stjórnina. Þegar ráðherra hefur fengið gögn um alvarlegan ágreining, fundað með stjórn fyrirtækisins án forstjóra og síðan lýst starfslokum hans með afdráttarlausum hætti fyrir þinginu, verður að gera ríkar kröfur til þess að skýringar hans séu nákvæmar og heildstæðar.

Gullegg þjóðarinnar á ekki að vera pólitískt leikfang

Landsvirkjun er ekki venjulegt fyrirtæki. Það er ein mikilvægasta sameiginlega eign íslensku þjóðarinnar og hefur verið byggt upp með auðlindum hennar, fjárfestingum og áratugalangri þekkingu.

Landsvirkjun er gullegg okkar allra. Það er hvorki eign ráðherra né stjórnar fyrirtækisins, heldur þjóðarinnar. Þess vegna eiga ráðherra og stjórn ekki að hafa síðasta orðið um hvort eigin vinnubrögð verði rannsökuð.

Þjóðin á rétt á skýrum svörum.

Höfundur er alþingismaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 7. nóvember 2026.