Sleggjan sett á ESB planið

Það vorar ekki vel hjá áhugamönnum um óhindraða för ESB-hraðlestarinnar. Lestin er að breytast í höktandi borgarlínu og var þó önnur fyrir á því fleti.

Planið sem gekk út á að hafa umræðu litla, bæði að umfangi og efni, er ekki að ganga vel.

Pakkinn er jú galopinn og auðvelt fyrir hvern þann sem vill að glöggva sig á hvað í honum er. Það gerir almenningur nú og er rétt að byrja.

Þetta sést vel í könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið sem birt var í vikunni.

Þegar þrjár síðustu kannanir um afstöðu fólks til aðildar eru skoðaðar, sést að það fjölgar jafnt og þétt í þeim hópi sem er andvígur aðild og fækkar í hópi stuðningsmanna aðildar, rétt eins og þeim hluta sem er óákveðinn. Fólk lætur ekki plata sig.

Orðaleppar eins og að ríkisstjórnin „treysti þjóðinni“ eldast illa þegar við blasir að ríkisstjórnin treystir ekki sjálfri sér til að halda á málinu.

Leiksýning formanns Flokks fólksins, þar sem hún lýsti eigin mati á fáránleika þeirrar kröfur að hún gæfi upp afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar var óumbeðið innlit í það fáránleikhús sem bíður landsmanna.

En nú þegar 54% landsmanna eru andvíg aðild og 46% hlynnt spyrja lestarstjórarnir: vill ekki hluti þessara 54% allavega kíkja í pakkann? Mögulega. Líkurnar á því aukast ef umræðan er lítil en það að halda aftur af umræðunni hefur bara ekki gengið neitt sérstaklega vel hingað til.

Nýtt plan er því að líkindum í smíðum. En hvað hugsar hver stjórnarflokkur í sínu horni?

Fyrir Viðreisn þarf að finna leið að nýju erindi í íslenskum stjórnmálum, verði niðurstaðan í ágúst sú að halda sig utan ESB. Það gæti reynst snúið, enda hefur fallið hratt á ímynd flokksins sem hægri sinnaðs borgaralegs afls í ljósi skattasýkinnar sem virðist hrjá flokkinn og poppúlísks yfirbragðs sem herðir á í samstarfinu með Flokki fólksins.

Hjá Samfylkingu, í öllu falli hjá formanninum, verður andað léttar, enda ljóst að Samfylkingin víkur sér fimlega undan ESB-sleggjunni með NEI-niðurstöðu í ágúst.

Þá getur flokkurinn hið minnsta þóst ætla að gera eitthvað af því sem talað var um fyrir kosningar og  sett minni orku en nú stefnir í, í mál sem formaðurinn sagði að væru ekki á dagskrá í aðdraganda kosninga.

Forsætisráðherra hlýtur að óa við því að ferill hennar í forsætisráðuneytinu, á toppnum, markist af máli sem hún vildi fyrir kosningar ekki verja orku þjóðarinnar í að rífast um.

Hjá Flokki fólksins skiptir þetta sennilega litlu máli þegar á reynir. Þar er ekki lengur feitan gölt að flá fylgislega.

Það er ljóst að umræðan um ESB aðild mun verða allt um lykjandi fram á haust. Sleggjan verður sett á upphaflega umræðuplan ríkisstjórnarinnar, enda ræðum við hin málið ekki á forsendum Þorgerðar og Kristrúnar, heldur okkar sjálfra. Það verður gaman.

Bergþór Ólason, alþingismaður.

Pistillinn birtist í Morgunblaðinu 9. apríl, 2026.