

Á gervihnattaöld
Ég var spurð að því í pallborðsumræðum á föstudaginn hverjar væru helstu hætturnar sem fælust
í þeim tilraunum sem eiga sér stað núna í Evrópu og Bandaríkjunum til þess að auka eftirlit með samskiptum manna á netinu, sérstaklega umræðum.
Nýlegar reglur ESB, t.d. DSA (Digital Service Act)um skyldur fyrirtækja sem starfa á netinu til
þess að vakta öll samskipti með tilheyrandi söfnun persónuupplýsinga og áhrif þessa á
málfrelsi og persónuvernd voru til umræðu á ráðstefnu ECR, sameiginlegs vettvangs hægri
íhaldsmanna í Evrópu. Á þeim bæ hafa menn réttilega áhyggjur af þverrandi þolinmæði almennt fyrir skoðunum fólks en um leið auknu langlundargeði gagnvart boðum og bönnum. Til viðbótar við þetta taldi ég rétt að nefna þriðja þáttinn. Andvaraleysið.
Ég hef verið jafnflink og næsti maður að tileinka mér nýja tækni hvers konar. Lærði og vann með tölvur um leið og þær urðu almennar. Get nokkuð auðveldlega tileinkað mér ný símtæki og forritin öll á þeim. Það eru helst fjarstýringar á sjónvörpum sem vefjast fyrir mér en það er auðvitað glíma sem allir jarðarbúar eiga í. Þegar hins vegar kemur að innviðum þessara tækja allra, rásunum og rafrænu sporunum, þá er ég nánast ren. Ég hef hvorki haft forsendur né áhuga á að vita hvernig þessi tæki öll virka. Ég veit að allt sem ég segi og skrifa inn í þessi tæki er vistað einhvers staðar. „Á skýi“ segja sérfræðingarnir eins og ekkert sé sjálfsagðara. Allt er þetta auðvitað mjög óáþreifanlegt og óljóst og virðist verða enn óljósara með hverri tækni sem lítur dagsins ljós. Auðvitað er hætta á að þessi gögn verði notuð gegn fólki með einhverjum hætti. Langflestir kjósa að leiða þá hættu hjá sér og gera eins og ég, vona bara að svo verði ekki. Það
mun þó vart rætast. Andvaraleysið er almennt.
Þótt DSA-löggjöfin hafi það að markmiði að „tryggja öryggi notenda, auka gagnsæi og gera stafrænan vettvang ábyrgan“, svo notuð sé lýsing gervigreindar á lögunum, þá felur hún netfyrirtækjum mikið vald á hendur með því að þeim er ætlað að skera úr um hvað teljist ólöglegt efni, ógnandi eða hatursfullt. Valdið til þess að ákveða hvaða efni sé ógnandi eða hættulegt færist þannig frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum til andlitslausra starfsmanna stórfyrirtækja sem nú þegar eru farnir að stýra með gerræðislegum hætti þjóðfélagsumræðunni sem fer fram á netinu. Loka jafnvel hiklaust á umræðu sem minnsti vafi er á að sé þóknanleg stjórnvöldum. Allt fer þetta fram hjá hinum venjulega notanda netsins.
Í þessu andvaraleysi þorra almennings, sem ég tel að miklu leyti afsakanlegt, felst hins vegar sú hætta að það saxist á frelsið og önnur mannréttindi. Ekki í einu skrefi heldur smám saman.
Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 16. nóvember 2026



