

Þinglegt eftirlit eða pólitísk skaðaminnkun Viðreisnar
Það er vandlifað í varaformennsku þessa dagana. Að minnsta kosti í Viðreisn.
Annar varaformaðurinn, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, hefur komið sér í þá stöðu að Alþingi telur ástæðu til að rannsaka samskipti hans og ráðuneytis hans við Landsvirkjun. Hinn, Eiríkur Björn Björgvinsson, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, virðist hins vegar þegar hafa komist að þeirri niðurstöðu að málið sé eiginlega ekki svo merkilegt, að þarna sé ekkert að sjá.
Það er út af fyrir sig ákveðið afrek.
Í viðtali við RÚV lýsti Eiríkur Björn þeirri persónulegu skoðun að málið væri „kannski ofvaxið“ og að fjármálaráðherra hefði gert ágætlega grein fyrir því á Alþingi. Þetta sagði hann um leið og hann viðurkenndi að kalla þyrfti eftir miklu magni gagna og fara yfir þau áður en rannsókn nefndarinnar lyki.
Gögnin eru ókomin, en aflátsbréfið virðist þegar tilbúið.
Sérkennileg afstaða hjá þingmanni sem gegnir forystuhlutverki í þeirri nefnd sem á að rannsaka málið. Hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er nefnilega ekki að gefa ráðherrum einkunn fyrir frammistöðu í ræðustól, heldur að komast að því hvort skýringar þeirra standist sjálfstæða skoðun.
Sagan sem var ekki öll sögð
Í umræðum á Alþingi síðastliðinn miðvikudag rakti ég fjölmörg atriði sem kalla á sjálfstæða rannsókn.
Þann 19. október sl. fullyrti fjármálaráðherra á Alþingi að öll sagan væri sögð um brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar eftir 17 ára farsælt starf. Þar væri ekkert að sjá annað en almennan ágreining um stjórnarhætti.
Annað hefur nú komið í ljós eftir að hluti gagnanna var birtur en fjármálaráðherra vissi að þar byggi mun meira að baki. Hann hafði verið sérstaklega upplýstur, ítrekað, um að mikill og alvarlegur trúnaðarbrestur væri á milli nýrrar „faglegrar“ stjórnar Landsvirkjunar og forstjórans til 17 ára.
Gögnin sýna t.d. að fjármálaráðherra fékk tölvupóst 11. september sl. sérstaklega merktum sem viðkvæmum þar sem var fjallað um þennan trúnaðarbrest milli stjórnar og forstjórans.
En þrátt fyrir allar upplýsingarnar sem fjármálaráðherra hafði um ástæður þess að forstjóri Landsvirkjurnar sagði starfi sínu lausu eftir 17 ár kaus hann að slá ryki í augu almennings og Alþingis.
Þann 26. október sagði svo sami ráðherra að engir stjórnarfundir hefðu verið haldnir án forstjórans, þegar ljóst var að hið minnnsta fjórir fundir hefðu verið haldnir án forstjórans. Þegar ég spurði hann sérstaklega út í þessa fullyrðingu síðastliðinn miðvikudag viðurkenndi hann að fyrra svar hans um þetta efni hefði ekki verið gott eða nákvæmt.
Í 6. grein laga um Landsvirkjun er sérstaklega kveðið á um að forstjóri skuli eiga sæti á stjórnarfundum. Sú regla er fortakslaus. Einu undantekningarnar á þeirri reglu eru þegar kjör eða persónuleg mál forstjórans eru til umræðu, þá víkur hann af fundi á meðan. Svo einfalt er það.
Því þarf að rannsaka hvað fór fram á þessum fjórum stjórnarfundum sem forstjórinn sat ekki, hvaða ákvarðanir voru teknar á þeim fundum og á hvaða lagalegu forsendum honum var haldið utan við fundina. Í ljós hefur jafnvel komið að tveir þessara funda voru ekki einu sinni með vitneskju forstjórans. Þetta er í hæsta máta óeðlilegt.
Þá þarf líka að upplýsa hvers vegna ráðherrann vildi ekki funda með forstjóranum þegar hann óskaði sérstaklega eftir því að ræða þennan trúnaðarbrest og miklu samskipti stjórnar og ráðherra. Fundinum var frestað um óákveðinn tíma og svo aldrei haldinn. Ráðherrann átti þó ekki í erfiðleikum með að finna tíma og efna til fundar með stjórn Landsvirkjunar á sama tíma, án forstjórans.
Nú hefur stjórnarformaður Landsvirkjunar staðfest að það var stjórnin sjálf sem ákvað að ekki væri þörf á fundinum sem forstjórinn hafði óskað eftir með ráðherra.
Með öðrum orðum: Forstjórinn vildi ræða við ráðherra það sem hann taldi óeðlileg samskipti stjórnar og ráðuneytis, en stjórnin, sem gagnrýnin beindist að, ákvað sjálf að ekki væri þörf á þeirri umræðu með ráðherra. Ráðherra lét segjast, átti aldrei fundinn með forstjóranum og hefur ekki getað útskýrt það með öðrum hætti.
Þykir einhverjum þetta eðlileg málsmeðferð?
Loks þarf að skoða þau umfangsmiklu samskipti sem voru milli stjórnar Landsvirkjunar og ráðherra og ráðuneytisins. Stjórnin hefur upplýst um níu fundi frá því hún tók við vorið 2025. Þar voru meðal annars rædd arðsemismál, arðgreiðslur, fjármagnsskipan og stjórnarhættir.
Á fundinum 6. janúar var samkvæmt fundargerð ráðuneytisins einnig fjallað um ágreining Landsvirkjunar og Landsnets, lög um Landsvirkjun og skuldabréf sem tengdist sölu Landsnets og arðgreiðslum – allt án forstjórans.
Hildur Sverrisdóttir dró þetta sérstaklega fram á Alþingi á miðvikudaginn og spurði ráðherra hvort honum þætti í raun rétt að lýsa slíkum umræðum sem almennu spjalli um stjórnarhætti. Ráðherrann gat engu svarað og reyndi enn og aftur að þyrla upp ryki í umræðunni.
Það blasir hins vegar við öllum sem eru ekki með kíkinn fyrir blinda auganu að þetta eru allt önnur og efnismeiri viðfangsefni á fundi stjórnar og ráðherra en venjulegt og almennt samtal um stjórnarhætti.
Hvar lágu mörkin milli eðlilegs eigandahlutverks ríkisins og afskipta af starfsemi fyrirtækisins? Voru þau virt? Og hver kannaði sjálfstætt hvort samskiptin og starfshættir stjórnarinnar samræmdust lögum?
Þetta eru spurningarnar sem eftirlitsnefnd Alþingis á að svara.
Kjarni málsins
Það þarf ekki að hafa fyrir fram mótaða skoðun á því hvort fjármálaráðherra hafi brotið lög eða farið vísvitandi með rangt mál til að sjá nauðsyn þess að rannsaka þessi atriði.
Þvert á móti er það einmitt tilgangur rannsóknarinnar að leiða staðreyndirnar í ljós.
Kalla þarf eftir fundargerðum, tölvupóstum, lögfræðilegum minnisblöðum og öðrum gögnum um samskipti ráðherra, ráðuneytis og stjórnar Landsvirkjunar. Skoða þarf hvers konar fyrirmæli, tilmæli eða upplýsingar fóru þar á milli og bera niðurstöðuna saman við fullyrðingar ráðherrans á Alþingi.
Hvað vissi ráðherra, hvenær vissi hann það, hvaða ráðstafanir gerði hann og hvers vegna sagði hann þinginu það sem hann sagði?
Þetta er kjarni málsins.
En þegar starfandi formaður eftirlitsnefndarinnar, varaformaðurinn frá Viðreisn, gerir lítið úr rannsóknarefninu áður en gögnin hafa verið skoðuð, hvað þá kallað eftir þeim, vaknar óhjákvæmilega spurning um hvort þinglegt eftirlit sé að breytast í pólitíska skaðaminnkun Viðreisnar.
Eiríkur Björn hefur auðvitað rétt á sínum persónulegu skoðunum. En forystumenn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis bera líka sérstaka ábyrgð á trúverðugleika þeirrar vinnu sem nefndinni er falin.
Á almenningur að treysta því að hér fari fram sjálfstætt og óháð eftirlit ef einn þeirra sem leiðir rannsóknina er þegar farinn að verja ráðherrann opinberlega?
Varaformenn Viðreisnar í vondum málum
Þessi uppákoma er ekki síst kostuleg í ljósi þeirra vandræða sem Viðreisn hefur glímt við undanfarnar vikur.
Fyrst hvarf Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eftir innri ágreining. Í kjölfarið tók Eiríkur Björn við varaformennsku stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar af Jóni.
Nú er varaformaður flokksins, Daði Már Kristófersson, kominn í þá stöðu að samskipti hans og ráðuneytis hans við verðmætasta fyrirtæki þjóðarinnar eru orðin viðfangsefni frumkvæðisrannsóknar Alþingis.
Og þá mætir nýi varaformaðurinn í eftirlitsnefndinni til leiks í opinberri umræðu með þá persónulegu skoðun sína að málið sé eiginlega ofvaxið.
Það verður að viðurkennast að varaformenn Viðreisnar hafa átt betri vikur.
Það er út af fyrir sig skiljanlegt að þingmenn Viðreisnar vilji standa með sínum ráðherra. En stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er ekki til þess ætluð að gæta pólitískra sérhagsmuna stjórnarflokka hvers tíma. Þar er horft til almannahagsmuna, ekki sérhagsmuna Viðreisnar.
Hér eru miklir almannahagsmunir undir. Það skiptir máli að almenningur geti treyst því að með stærsta og verðmætasta fyrirtæki þjóðarinnar sé farið að lögum og það sé ekki undirorpið pólitískra afskipta ráðherra hverju sinni. Það skiptir líka máli að ráðherrar komi hreint fram gagnvart Alþingi.
Þótt varaformenn Viðreisnar kunni að vilja ljúka þessari sögu er hún augljóslega ekki öll sögð.
Höfundur er þingmaður Miðflokksins.
Greinin birtist fyrst á visir.is 7. nóvember



