Sagan öll – nema það sem vantaði


Fjármálaráðherra hefur undanfarna daga lagt sig fram um að sannfæra þjóðina um að ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað í aðdraganda þess að Hörður Arnarson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Það hefur hins vegar reynst ráðherranum nokkuð erfitt að halda sig við sömu söguna.

Þann 19. október var málið, að sögn ráðherra, einfalt. Hörður hefði ákveðið sjálfur að láta af störfum vegna ólíkra áherslna um stjórnun fyrirtækisins. Ekki hefði verið deilt um einstök málefni og sagan væri öll sögð.

Síðan hafa komið fram gögn sem sýna að sagan var töluvert lengri. Og það sem verra er fyrir ráðherrann: Honum var sjálfum kunnugt um ýmislegt af því sem hann kaus að láta ósagt.

Hádegisverðirnir sem urðu að stjórnarfundum

Þann 26. október fullyrti Daði Már Kristófersson að engir formlegir stjórnarfundir hefðu verið haldnir án Harðar Arnarsonar. Hann vísaði til þess að stjórnarmenn hefðu einfaldlega hist yfir hádegisverði. Enginn hefði meinað forstjóranum aðgang að stjórnarfundi.

Þetta var afdráttarlaus yfirlýsing.

Síðan kom annað í ljós. Hörður hafði gert athugasemdir við fjóra formlega stjórnarfundi þar sem hann hafði annaðhvort verið látinn víkja eða ekki fengið vitneskju um fundina fyrr en eftir á.

Þegar ráðherrann mætti til umræðu á Alþingi í gær, 4. nóvember, viðurkenndi hann að fyrra svar sitt hefði ekki verið gott eða nákvæmt.

Það er út af fyrir sig ágætt að ráðherra geti viðurkennt ónákvæmni. En spurningin stendur eftir: Hvers vegna fullyrti hann eitthvað sem hann hafði ekki nægilega traustar upplýsingar til að fullyrða? Og mátti raunar vita að var rangt miðað við gögn sem nú eru komin fram.

Og hvers vegna þurfti að draga hið rétta fram með ítrekuðum fyrirspurnum, fréttaumfjöllun og birtingu gagna?

Það er rétt að halda því til haga að þetta er ekki í fyrsta skipti sem ráðherra er sakaður um að afvegleiða Alþingi með ónákvæmum, eða röngum svörum.

Viðvörunin sem lá fyrir

Þann 15. júní sendi Hörður Arnarson stjórn Landsvirkjunar formlegt minnisblað um lagalega áhættu í rekstri fyrirtækisins.

Þar var ekki verið að kvarta undan því að stjórnarmenn fengju sér saman hádegismat.

Forstjórinn lýsti áhyggjum af auknum samskiptum stjórnar og ráðuneytis utan formlegra vettvanga, stjórnarfundum án þátttöku sinnar og því sem hann taldi bein afskipti stjórnarmanna af daglegum rekstri.

Hann varaði jafnframt við því að afskipti stjórnvalda gætu skapað fyrirtækinu áhættu gagnvart samkeppnis- og ríkisstyrkjareglum EES.

Þann 11. september fékk fjármálaráðherra tölvupóst frá sérfræðingi eigin ráðuneytis. Þar var efni minnisblaðsins rakið og upplýst að traust milli stjórnar og forstjóra væri verulega skert.

Það var tæpum þremur vikum áður en Hörður tilkynnti starfslok sín.

Þegar ráðherrann svaraði Alþingi 19. október hafði hann því upplýsingar um mun alvarlegri og afmarkaðri ágreining en almenna togstreitu um stjórnunarstíl.

Hann kaus að láta þær upplýsingar ekki fylgja svari sínu.

Fundurinn sem aldrei varð

Annað atriði er sérkennilegt.

Í desember 2025 hafði verið ákveðið að halda fund í janúar þar sem stjórnarformaður og forstjóri Landsvirkjunar hygðust ræða við ráðherra. Hörður hefur lýst því að tilgangurinn hafi verið að gera grein fyrir áhyggjum af samskiptum stjórnar, ráðuneytis og forstjóra.

Fundinum var frestað. Í staðinn fundaði ráðherrann með stjórn Landsvirkjunar 6. janúar, án forstjórans.

Á þessum fundi stjórnar með fjármálaráðherra, án forstjóra, var meðal annars rætt um stjórnarhætti, ágreining Landsvirkjunar og Landsnets og fjárhagsleg atriði tengd arðgreiðslum.

Þessi fundur og það sem þar fór fram er sennilega efnislega mikilvægastur þegar mat er lagt á hversu rangstæður ráðherrann hefur verið í tilsvörum sínum.

Ráðherrann hefur haldið því fram að um tvo aðskilda fundi hafi verið að ræða og að engri fundarbeiðni Harðar hafi verið hafnað. Stjórnarformaðurinn hefur hins vegar staðfest að fyrirhuguðum fundi með forstjóranum hafi verið frestað og að stjórnin hafi síðar ákveðið að óska ekki eftir nýjum fundi.

Stjórnin sem umkvartanirnar beindust að sló semsagt af fundinn sem stjórnin sjálf átti aldrei að vera á. Hér er auðvitað ekkert að sjá.

Hér vaknar einföld spurning: Hvernig stendur á því að ráðherra gat fundað með stjórninni um stjórnarhætti fyrirtækisins, en fundurinn þar sem forstjórinn hugðist koma áhyggjum sínum á framfæri fór aldrei fram?

Lögfræðiálitið og stutta niðurstaðan

Stjórn Landsvirkjunar aflaði 18 blaðsíðna lögfræðiálits um stjórnskipulag fyrirtækisins.

Þar er vissulega viðurkennt að stjórn geti í einstökum tilvikum fundað án forstjóra. En þar er líka tekið skýrt fram að slíkar undantekningar komi helst til greina þegar fjallað er um persónulega stöðu hans, starfskjör, einstakar ráðstafanir eða frammistöðu.

Enn fremur er varað við því að óformleg samskipti komi í stað raunverulegrar ákvarðanatöku á stjórnarfundum. Sérstaklega er lögð áhersla á að ákvarðanir Landsvirkjunar séu sjálfstæðar og lausar við áhrif stjórnvalda.

Þetta eru ekki smáatriði. Þetta eru grundvallaratriði í stjórnarháttum eins mikilvægasta fyrirtækis þjóðarinnar. Vilji menn breyta þessu fyrirkomulagi, þá þurfa menn að breyta þeim reglum sem fyrirtækið fellur undir.

Þann 30. október sendi fjármálaráðuneytið ráðherra einnar blaðsíðu minnisblað þar sem því var lýst að ekkert benti til þess að stjórn Landsvirkjunar hefði farið út fyrir heimildir sínar.

Í þeirri samantekt er þó ekki að finna sérstakt, rökstutt mat á hverjum þeirra stjórnarfunda sem forstjórinn gerði athugasemdir við.

Það hlýtur að mega spyrja hvort svo afdráttarlaus niðurstaða sé tímabær áður en öll málsatvik hafa verið upplýst.

Hver ber ábyrgðina?

Enginn dregur í efa að stjórn Landsvirkjunar eigi að veita forstjóra aðhald. Enginn heldur því heldur fram að forstjóri eigi að vera hafinn yfir gagnrýni.

En stjórn sem skipuð er af ráðherra verður að lúta sömu lögum og aðrir. Og ráðherra sem fer með eigendahlut ríkisins verður að geta gert grein fyrir því hvernig hann hefur sinnt hlutverki sínu.

Það dugir ekki að vísa í sjálfstæði stjórnar þegar ábyrgðar er krafist, en hafa á sama tíma sjálfur frumkvæði að samskiptum við stjórnina um málefni fyrirtækisins.

Ekki verður heldur komist hjá upplýsingaskyldu ráðherra gagnvart Alþingi með því að kalla mikilvægar upplýsingar aukaatriði.

Í 50. gr. þingskapalaga er kveðið á um skyldu ráðherra til að leggja fram upplýsingar sem hann hefur aðgang að og hafa verulega þýðingu fyrir mat þingsins á máli.

Því skiptir máli hvað ráðherrann vissi, hvenær hann vissi það og hvers vegna svör hans urðu jafn afdráttarlaus og raun ber vitni.

Ég hef ekki séð gögn sem sanna að ráðherra hafi fyrirskipað stjórn Landsvirkjunar að ryðja forstjóranum úr vegi. Slíkt verður ekki fullyrt.

En fyrirliggjandi gögn sýna að ráðherra hafði vitneskju um alvarlegan ágreining, að hann gaf síðar rangar eða ónákvæmar upplýsingar um fundi stjórnarinnar og að mörgum grundvallarspurningum um aðdraganda starfslokanna er enn ósvarað.

Ráðherrann hefur nú lýst stuðningi við að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis skoði málið. Það er eðlilegt næsta skref.

Sú athugun þarf að ná til samskipta ráðuneytisins við stjórn Landsvirkjunar, aðdraganda starfsloka Harðar, fundargerða og þess hvernig ráðherra uppfyllti upplýsingaskyldu sína gagnvart Alþingi.

Þegar svör ráðherra breytast eftir því sem fleiri gögn koma fram er ekki nóg að segja að sagan sé öll sögð.

Þá þarf að leggja gögnin á borðið. Öll gögnin.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins.

Greinin birtist fyrst á visir.is 5. nóvember 2026