

Áherslur Miðflokksins
Ísafjarðarbær er ágætlega stórt sveitarfélag sem gott er að búa í. Við viljum þó verða fjölmennari og til þess að svo geti orðið þarf að huga betur að fólkinu í samfélaginu, því án fólksins erum við ekki neitt. En við þurfum líka að ráða við það að stækka. Það þarf að stækka suma leikskóla og grunnskóla, hvort sem verður farið í að byggja nýja eða byggja við þá sem fyrir eru. Það þarf að taka ákvörðun um það hvað á að gera og byrja að framkvæma, og það sem allra fyrst því tíminn vinnur ekki með okkur. Það leysir engan vanda að fresta vandamálunum.
Það þarf að efla enn frekar íþrótta og tómstunda starf fyrir börnin sama hvar í sveitarfélaginu þau búa. Við viljum hækka frístundastyrki fyrir börn svo þau hafi meiri tækifæri til að taka þátt í frístundum, óháð efnahag foreldra. Almenningssamgöngur þurfa einnig að henta börnum og unglingum sem fara á milli byggðarkjarna til að sækja íþróttir og aðrar tómstundir. Krakkar úr litlu byggðarkjörnunum þurfa að sækja æfingar á Ísafjörð en krakkar á Ísafirði gætu einnig sótt æfingar á Þingeyri, Flateyri og/ eða Suðureyri. Það er nefnilega jafn langt í báðar áttir og mætti alveg nýta íþróttahúsin í sveitarfélaginu betur, bæði fyrir æfingar barna og fullorðinna.
Leikskólagjöldum þarf að halda sem lægstum og er það mín skoðun að matur eigi að vera gjaldfrjáls í leikskólum líkt og í grunnskólum, það eitt og sér myndi lækka leikskólagjöldin töluvert.
Það þarf að auðvelda uppbyggingu alls staðar í sveitarfélaginu, hvort sem það er í húsnæðismálum eða atvinnumálum. Það þarf að fjölga lóðum í öllum byggðakjörnum bæði fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Ef fólk hefur ekki hús til að búa í og atvinnu þá fer það bara eitthvað annað. Vilji fólk byggja þá ber að fagna því og aðstoða það í gegnum ferlið á sem fljótvirkastan hátt en ekki draga úr því með óskýrum svörum, seina gangi og vitleysu.
Í gegnum tíðina hafa minni staðirnir oft setið á hakanum og því þarf að breyta. Það þarf að hafa vilja íbúanna í fyrirrúmi, sama hvort það er á Þingeyri, Flateyri, Suðureyri eða Hnífsdal. Það þarf að spyrja íbúa hvað þeir vilja láta gera fyrir staðinn sinn, því að oft vita þeir best hvað þarf að gera og hvað er þeim fyrir bestu. Í hverjum byggðarkjarna er hverfisráð sem sinnir mikilvægu starfi. Mikilvægt er að hlusta á og framfylgja þeim tillögum sem frá þeim koma eins og kostur er hverju sinni.
Það má ekki gleyma sveitinni heldur. Þó að bæjum sem þar sem hefðbundinn búskapur er stundaður hafi fækkað verulega, þá eru samt margir eftir. Fjallskil eru mér mjög ofarlega í huga, með færri bæjum er gott skipulag ennþá mikilvægara. Í Ísafjarðarbæ eru nokkur stór æðarvörp, til að þau geti þrifist þarf að halda vargi í skefjum. Endurskoða þarf fyrirkomulag refaveiða í sveitarfélaginu, því það þarf að halda refnum í skefjum ekki síst til að vernda allt fuglalífið. Þarna er ég ekki að tala um friðlandið á Hornströndum, svo það sé tekið fram.
En jæja ég gæti sjálfsagt haldið miklu lengur áfram en ég þarf að fara og hjálpa henni Blíðu minni sem er að bera og set því punktinn hér.
Til þess að það sé hægt að framkvæma þetta og meira til þá hvet ég þig til að setja X við M 16.maí.
Hákon Sturla Unnsteinsson, skipar 5.sæti á lista Miðflokksins í Ísafjarðarbæ.
Greinin birtist á bb.is 11. maí 2026.



