Stærsti áhrifavaldurinn

Okkar vilji er til að finna leiðir til að styrkja einkarekna fjölmiðla án þess að veikja ríkisfjölmiðilinn.“ Þessi ummæli lét Logi Einarsson menningarmálaráðherra falla í viðtali á Sprengisandi í gær. Viðtali sem að öðru leyti einkenndist af innihaldslausum frösum um gerjun á fjölmiðlamarkaði, þróun gervigreindar, óskilgreinda deiglu og framtíðarsamstarf við líkt þenkjandi þjóðir. Fyrr í þættinum höfðu fulltrúar einkareknu fjölmiðlanna Morgunblaðsins og Sýnar lýst því hvernig óréttmæt samkeppni við ríkisfjölmiðilinn er að sliga einkarekstur á fjölmiðlamarkaði.

Í spjallþættinum Vikulokunum, á RÚV, á laugardaginn var RÚV líka til umræðu. Þar benti fjölmiðlakonan Eyrún Magnúsdóttir, Gímaldinu, á að það vilji aldrei neinn ræða RÚV, „því það er svo flókið, erfitt og viðkvæmt, sérstaklega í viðtalsþætti á RÚV“. Það út af fyrir sig er áhyggjuefni en trúlega rétt metið hjá Eyrúnu. Fjölmiðlamenn utan RÚV hafa sýnt starfsemi RÚV mikið langlundargeð. Þrátt fyrir að kvarta sáran undan starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla hafa fáir, ef nokkrir, lagt til RÚV í því sambandi ef undan er skilið ákall um að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Þá sjaldan sem þeir benda á að RÚV sé orðið frekt til fjörsins er látið fylgja með að RÚV gegni samt mikilvægu hlutverki, RÚV verði að vera sterkt, þeim þyki vænt um RÚV, bla, bla, bla. Með öðrum orðum, það þorir enginn að anda á RÚV. Menn óttast að brenna brýr að baki sér með því að kalla eftir minna umfangi RÚV.

Ástæðan er auðvitað sú að allt þetta ágæta fólk vill geta leitað til RÚV um vinnu ef allt annað bregst. Og því miður er margt að bregðast á fjölmiðlamarkaði og vant fjölmiðlafólk af einkamiðlum rekur nú á fjörur RÚV.

En hvert er umfang RÚV? Eyrún nefndi í þættinum að RÚV hefði yfir að ráða 32 virkum rásum á samfélagsmiðlum. Tíu reikningum á bæði Facebook og Instagram auk rása á Tiktok, X, Linkdin og Youtube. Þannig hefði RÚV 700 þúsund fylgjendur og undir það má taka með Eyrúnu að RÚV er meðal stærstu íslenskra áhrifavalda á samfélagsmiðlum. Þá eru ótalin hlaðvörpin sem RÚV er farið að framleiða í samkeppni við aðra og heimasíða sem kemur í veg fyrir að einkareknir fjölmiðlar selji fréttir á vefnum. Þáttarstjórnandi RÚV sá sig knúinn til að upplýsa hlustendur um að hann hefði ekki kannað þetta sérstaklega. Svona eins og til að sá efasemdum í hugum hlustenda um þessa tölfræði sem þarna var lögð á borð því hún er auðvitað lyginni líkust. Þegar samtalinu lauk á RÚV voru spilaðar auglýsingar. Sú fyrsta var um einhvers konar leik á netinu. Í boði RÚV.

Nái stefna menningarmálaráðherra fram að ganga eru einkareknir fjölmiðlar dauðadæmdir. Fjölmiðlar í lýðræðisríkjum eiga ekki að vera reknir eða styrktir af ríkinu.

Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins

Pistillinn birtist fyrst í Morgunblaðinu 7. september 2026.