Teitur Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði grein hér á dögunum þar sem hann steytir hnefann gagnvart loftslagsstefnu eigin flokks og eigin ríkisstjórnar. Hann gæti hafa gleymt, eða alls ekki, að það er ráðherra hans eigin flokks, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem stýrir umhverfis- og loftslagsmálunum og situr sveittur við að demba hverri óraunhæfu loftslagskvöðinni á fætur annarri á landsmenn, þannig að menn setur hljóða.
Teitur Einarsson ætti kannski að hóa í sinn mann á næsta þingflokksfundi og koma þessari skoðun sinni til skila, eða horfast í augu við það að hann ver ríkisstjórn falli á hverjum degi sem neitar að horfast í augu við veruleikann í loftslagsmálum. Neitar að viðurkenna fullkomna sérstöðu Íslands í þessum málum, gríðarlegan árangur á fyrri stigum og magn grænnar orku hér á landi.
Kannski ætti Teitur Einarsson að hverfa frá því að reyna að finna sökudólga sem sitja ekki í ríkisstjórn. Kannski ætti hann að gleðjast yfir því að hann hafi löngum átt samverkamenn á Alþingi hvað það varðar að horfa raunhæft á umhverfismálin – þingflokk Miðflokksins sem hefur haldið því viðstöðulaust til haga að Íslandi sé best borgið til framtíðar með aukinni virkjun grænnar orku og eigi ekkert skylt við lélega stöðu umhverfismála innan ESB og beri því að nálgast þessi mál á eigin forsendum.
Samþykkt Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á Parísarmarkmiðunum í tíð ríkisstjórnar hans var einmitt það – markmið, án útfærslu, um að takmarka hækkun hitastigs jarðarinnar o.fl. Það er svo Sjálfstæðisflokkurinn sem útfærir markmiðin með vinum sínum í Vinstri grænum síðustu sjö ár og það er þá sem menn keyra kyrfilega út í skurð. Fjöldi þjóða sem undirrituðu óútfærðu markmiðin í París forðum hefur einmitt hafnað því að hneppa þjóð sína í fjárhagslegan sjálfsskaða eins og Ísland hefur gert.
Það er fagnaðarefni að Teitur Einarsson sé nú fyrst að vakna til lífsins varðandi þessari feigðarför þegar kemur að útfærslu markmiða ESB í loftslagsmálum. Við munum styðja öll góð mál í þessum efnum og vonum að Teiti Einarssyni auðnist að koma vitinu fyrir félaga sína í Sjálfstæðisflokknum hratt og örugglega.
Að endingu, vil ég hvetja þá sem þetta lesa til að hlusta á sérþátt af hinu geysivinsæla hlaðvarpi þingflokks Miðflokksins Sjónvarpslausir fimmtudagar sem er birtur verður 1. ágúst nk. á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Þar verður farið skipulega í gegnum umhverfismálin, 150 atriða aðgerðaáætlun umhverfisráðherra í loftslagsmálum, stöðu þeirra og stefnu til framtíðar – ásamt því hvar afglöpin liggja í meðferð þeirra mála hjá ríkisstjórninni í dag. Stay tuned, eins og þeir segja!