Raunheimar Suðurnesja

Kristófer Máni Sigursveinsson formaður Gullbrár, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
 
Raunheimar Suðurnesja
 
Ég er fæddur og uppalinn Sandgerðingur og hef búið hérna alla mína ævi, að háskólaárum
undanskildum. Sem ungur fjölskyldufaðir þriggja orkumikilla stráka þrái ég fátt meira en að
framtíð þeirra sé að fá að alast upp í því umhverfi sem ég naut svo góðs af á mínum eigin
uppvaxtarárum. Staðreyndin er hinsvegar að þessi framtíð verður óræðri með hverju árinu
sem líður og óttast ég að við fjölskyldan sjáum ekki margt annað í stöðunni en að flytja
erlendis ef ekkert breytist.
Við Suðurnesjamenn erum upp til hópa samansafn af fólki sem vinnur sína vinnu og elur
upp sína fjölskyldu. Við erum iðin og höfum almennt ekki tíma til þess að mótmæla
ríkisvaldinu og stefnu þess sem hafa leitt til þeirra miklu skerðinga sem orðið hafa verið á
lífsgæðum okkar á síðastliðnum árum. Þegar ég tala við fólk, ekki hvað síst aðra jafnaldra
mína, þá finn ég fyrir miklum áhyggjum af þróuninni sem rekja má að mörgu leyti til
vanrækslu og stefnuleysis fráfarandi ríkisstjórnar í ákveðnum málaflokkum og áhrifa þeirra á
grunnstoðir samfélagsins.
Grunnstoðirnar sem hafa hve flest vandamál eru sem dæmi leik- og grunnskólarnir,
heilsugæslan og löggæslan. Ein af megin orsökum þessara vandamála er sá nánast
ótakmarkaði fjöldi fólks sem flætt hefur yfir landamærin hér á Suðurnesjunum. Innviðir
samfélagsins eru engan veginn í stakk búnir til að geta tekið á móti slíkum fjölda fólks og
sárvantar lausnir sem bitna ekki á núverandi íbúum. Má þar nefna sem dæmi að ríkið hefur
verið að yfirbjóða leigjendur á Ásbrú í Reykjanesbæ til þess að geta hýst aðkomufólk. Það
minnkar framboð íbúða á almennum leigumarkaði all verulega og verðleggur fólk út af
húsnæðismarkaðinum. Þetta bitnar mest á grunnstoðum samfélagsins sem getur því illa
tekið á móti þeim sem vilja koma til landsins til að skapa sér betra líf. Allir tapa.
Miðflokkurinn virðist vera eini flokkurinn sem er umhugað um þessi raunvandamál sem blasa
við íbúum Suðurnesja og þjóðarinnar í heild sinni. Mikil aðsókn ungs fólks í Miðflokkinn
síðustu misseri kemur ekki á óvart í ljósi þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er eini
stjórnmálaleiðtoginn á landinu sem hefur verið að tala um þessi málefni og hefur reynt að
sporna gegn þessari þróun í mörg ár. Miðflokkurinn hyggst tækla þessi vandamál með
skynsemishyggju að leiðarljósi svo við getum aftur orðið sú blómstrandi þjóð sem ég man
eftir að við vorum á mínum bernskuárum.
Þess vegna hef ég tekið að mér að leiða stofnun nýrrar ungliðahreyfingar Miðflokksins í
Suðurkjördæmi sem nefnist Gullbrá. Ég tel vera brýna þörf á öflugu ungliðastarfi
 
Miðflokksmanna í Suðurkjördæmi og að það sé hreyfing sem getur talað fyrir hagsmunum
ungs fólks. Markmið Gullbrár er að byggja upp starfsemi sem verður pólitískt afl allt frá
Suðurnesjum og austur á Höfn í Hornafirði sem leggur áherslu á að ákvarðanir stjórnvalda
vinni að því að skapa aðstæður þar sem ungar fjölskyldur getur skotið niður rótum og haft
tækifæri til að skapa framtíð fyrir börnin sín.
Ég hlakka mikið til komandi kosningabaráttu sem leiðtogi Gullbrár og ætlum við að hefja
hana með Nýliðakvöldi Gullbrár þann 26.október kl 20:00 á Brons í Keflavík. Ég hvet þig til
að mæta og taka þátt í þessari vegferð með okkur.
Höfundur er formaður Gullbrár, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðurkjördæmi.